Hnetusmjörs ostaterta
Handa 8
BOTN
1 ½ bl mjög dökkar súkkulaði kökur ( jafnvel orios )
5 msk ósaltað smjör
FYLLING
180 g rjómaostur við stofuhita
¾ bl hnetusmjör við stofuhita
1 bl rjómi
½ + bl flórsykur
1 tsk vanilludropar
-
30 g millisætt súkkulaði saxað
BOTN; Hitið ofninn í 175°c . Smyrjið lausbotna tertumót með smjöri. Miljið kökurnar í matvinsluvél með smjörinu í mjúkann massa. Klæðið kantana og botninn með massanum, pressið vel með köntunum. Bakið í 10 mín og kælið á kökugrind
FYLLING; þeytið saman rjómaosti og hnetusmjöri í hrærivél. Þeytið saman í annari skál rjóma sykur og vanillu passið að þeyta rjómann ekki of mikið.
Blandið rjómanum saman við í tvennu lagi. Haldið til haga 3 msk af fyllingu setjið restina í botninn og jafnið vel út. Bræðið súkkulaðið og blandið samanvið afgangs fyllingu, setjið í sprautupoka með mjórri sléttri túðu og sprautið í hringi á tertuna. Dragið með hnífsoddi frá miðju út að hliðum. Kælið tertuna fullkomlega og takið úr forminu rétt fyrir framreiðslu.
Geymist í kæli 2-3 daga Framreiðist köld.
Innbakaðar Nautalundir Wellington
Magn og innihald
1 st nautalund sina hreinsuð ca 1-1,5 kg
1 blað smjördeig ca 500-700 gr
6-800 g duxell
1 st egg ( slegið með jafnmiklu af vatni, smá salt og sykur)
Duxell
100 g smjör
200 g laukur fínt saxaður
100 g sveppir saxaðir
100 g skínka söxuð/hökkuð
100 g brún sósa
1 msk tómat purre
1 tsk thyme
1 st hvítlauksgeiri
1 bt steinselja fínt söxuð
200 g brauðraspur ókryddaður
Aðferð Duxell
Hitið smjörið í potti , kraumið laukinn uns hann er orðinn gullbrúnn, bætið þá sveppum útí steikið áfram í 3 mín, setjið þá rest af uppskrift útí – og sjóðið saman, smakkið til og þurrkið síðan upp með brauðraspi. Kælið.
Nautalund
Kryddið nautalundina með ca 1 msk thyme, 1-2 msk grófu salti og 1 msk
hvítum nýmuldum pipar, ½ dl olífu olía
Nuddið kjötið vel með kryddinu og brúnið á vel heitri pönnu eða grillið á útigrilli, mikilvægt að brúna vel, en ekki seikja of lengi. Kælið.
Samsetning
Fletjið út smjördegið í jafnan ferhyrning
Setjið ½ af duxellinu á degið , lundina ofaná og res af duxell yfir lundina og þekjið vel. Skerið í horn af deginu sem nema við lundina. Þannig að fyrir miðju á deginum á hvorum enda er flibbi sem legst yfir lundina. Penslið vel með vatni. Leggið þá annan helminginn yfir lundina og síðan hinn, þar sem deig mætist passið að þar sé degið vel penslað með vatni.
Takið endana sem eftir eru af deginu (Hornin) og skerið í strimla.
Penslið degið nú með egginu og raðið strimlunum á víxl yfir lundina, penslið og leyfið lundinni að standa í kæli í ca 2 tíma áður en hún er bökuð.
Bakstur
Í venjulegum heimilisofni.. 200-210 °c í 25 min eða þar kjarnhiti hefur náð 50°c þá er hún tekin út og látin standa í 20 mín áður en hún er skorin fyrir..
Hvítlauks og kryddjurtamarinerað lambalæri
1 st lambalæri ca 2,8-3 kg
Úrbeinið lykilbeinið frá og hækilinn.
4 msk gróft salt
2 msk nýmulinn hvítur pipar
2 msk thyme
2 msk rosemarine eða 2-3 greinar ferskt
1 msk estragon
6-8 st hvítlauksgeirar skornir í strimla
2 dl ólífuolía
Stingið með hnífsoddi í lambalærið og stingið hvítlauknum inn í lærið.
Kryddið lærið og nuddið vel.
Best finnst mér að láta kjötið þiðna í kæli í 3-4 daga, þá krydda það og láta það standa í kæli í aðra 3-4 daga.. tekið út úr kæli 5-7 tímum fyrir eldun.
Eldun.. Hitið ofnin í 210 °c og steikið lærið í ca 15 mín , lækkið hitan í 90°c stingið kjöt hitamælir í lærið innað beini og eldið lærið uns það hefur náð 64°c , leyfið því þá að jafna sig í ca 20 mín áður en það er skorið fyrir..
Tíminn sem það tekur kjötið að ná 64°c getur verið allt að 4-5 tímar..
Grænt Pestó
200 g ferskt basil
50 g furuhnetur ( má sleppa nota cashew í staðinn )
40 g hvítlaukur
40 g þurkaður parmesan
60 g Parmesan ferskur
½ tsk salt
½ tsk hvítur nímulinn pipar
-bætt svo samanvið
½ kg rjómaostur
½ l olífuolía
2 msk brauðraspur / ókryddaður
Blandið öllu saman í matvinsluvél og maukið vel, bætið síðan seinnihlutanum samanvið..
Gróft brauð með þurkuðum ávöxtum
500 g brauðhveiti
500 g durum semolina
50 g heilhveiti
40 g rúgmjöl
20 g hveitiklíð
50 g graskersfræ
50 g sólblómafræ
10 g þurrger / eitt bréf
20 g salt
Blandið saman í hrærivelaskál eða á borði bætið síðan vökvanum rólega útí
6 dl volgt vatn
½ dl olía
Hrærið vel saman uns degið fer að sleppa skálinni, látið lyfta sér setjið þá saman við
150 g apriskósur saxaðar gróft
150 g rúsinur
Hnoðið áfram án þess þó að kremja ávextina of mikið, látið hefast.
Þega degið hefu hefast í annað sinn er það mótað og látið hefast að nýju. Bakað við ca 180°c við mikinn raka í ca 35-45 mín