Veislusalir

Listasalurinn í Reykjanesbæ/ Keflavík. Salurinn er beint á móti eldhúsi mínu í grófinni

Fjöldi allt að 90. manns / allur borðbúnaður á staðnum

www.http://listasalur.is/ | Grófin 8 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 8448 | listasalur@listasalur.is

_______________

KK.salurinn við vesturgötu Keflavík Rnb

Fjöldi allt að 120 manns / allur borðbúnaður á staðnum

Tengiliður Hjörleifur sími 864-7152

—————————

Mánagrund / Hestamannafélgið Máni

Safnaðarheimið Innri Njarðvík

Safnaðarheimilið / kirkjan / keflavík

Framsóknar salurinn hafnargötu

______________

Kíwanissalurinn  í Rnb / Keflavík

Tengiliður. Kalli / Jakob sími 896-8365 / 895-0506

______________

Vogarskóli í Vogunum

Mjög flottur salur fyrir stærri samkomur fyrir allt að 200 manns.

Tengiliður Elín sími 895-0936

___________________________

Fóstbræðraheimilið

Fóstbræðrasalurinn

Umsjón: Arnlaugur Helgason s.  821 6706

Anna Birgitta           s.618 6292

Umsjón: 15. – 24. okt. Íris         s: 517 8707          822 1976

Undanfarin ár hefur veitingaaðstaðan verið eigð rekstraraðilum í þeirri grein en frá og með 1. maí nk. tekur karlakórinn Fóstbræður á ný við rekstri hússins.

Rétt er að benda styrktarfélögum og velunnurum kórsins á að hægt að er komast að mjög góðu samkomulagi við kórinn um útleigu á húsnæðinu fyrir veisluhöld af flestu tagi. Með auknu rými standa tveir misstórir salir leigutökum til boða og fullkomin aðstaða til samkvæmishalds.

Rétt er að benda á að þeir sem vilja geta fengið hina síungu Fóstbræður til að syngja í samkvæmum sem haldin eru í húsinu og er meira en líklegt að slíkir samningar leiddu af sér hagstæðara verð á öllum sviðum.

salurfostbraedraheimilid2Fóstbræðraheimilið að Langholtsvegi 109 var vígt 22. apríl árið 1972 og lagði fyrrverandi söngstjóri kórsins, Jón Halldórsson hornstein að húsinu. Í húsnæðisnefnd höfðu þá starfað ötullega árum saman þeir Þorsteinn R. Helgason, Magnús Guðmundsson frá Hvítárbakka og Ásgeir Hallsson.

Fjöldi kórmanna lagði á sig gríðarlega vinnu við byggingu heimilisins allt frá því að lóðinni var úthlutað árið 1965 og með byggingu þess rættist áratuga gamall draumur félagsins um eigið athvarf og heimili. Kórinn hafði leigt æfingaaðstöðu á ýmsum stöðum í Reykjavík frá stofnun og komu margar sögufrægar byggingar í borginni við sögu í þeim efnum. Nægir að nefna hús KFUM við Amtmannsstíg, Miðbæjarbarnaskólann, Höfn við Ingólfsstræti, Varðarhúsið, Menntaskólann í Reykjavík, Sanitas við Lindargötu, Hljómskálann og Vonarstræti 4 þar sem kórinn átti lengi athvarf. Það var því sannkölluð hátíðastund þegar Fóstbræðraheimilið reis loks af grunni og þótt hér sé minnst á ósérhlífna kórfélaga má ekki gleyma framlagi Fóstbræðrakvenna sem létu alls ekki sitt eftir liggja í fjáröflun og sjálfboðavinnu.

salurfostbraedraheimilid5Allar götur síðan hefur kórinn átt sitt heimili í húsinu. Þar er stór og góður æfingasalur með mjög vönduðum flygli. Þar er Jónsstofa sem hýsir muni og minjar úr merkri sögu kórsins, nefnd eftir Jóni Halldórssyni og þar hanga ómetanlegar teikningar snillingsins Halldórs Péturssonar af kórfélögum. Allt stuðlar þetta að því að skapa hlýlegt og virðulegt andrúmsloft sem er þrungið sögu og hefðum.

Fyrir fáum árum festi kórinn kaup á viðbótarhúsnæði á sömu hæð og ræður nú yfir fjölbreyttari húsakynnum en áður og betri starfsaðstöðu.

Hið upprunalega Fóstbræðraheimili hefur alla tíð verið leigt til veisluhalda og samkvæma af margvíslegu tagi enda aðstaða með afbrigðum góð. Fyrir fáum árum voru innréttingar og gólfefni endurnýjuð svo óhætt er að fullyrða að veislusalir þar standast allar kröfur nútímans.