Kaffi veitingar

Allar kökur og brauð er bakað af okkur sjálfum og ekkert tilsparað í hráefni til að veislan verði 1.flokks, annað kemur ekki til greina….

Höfum séð um kaffiveitingar í fjölda brúðkaupa, afmæli sem og erfisdrykkjur fyrir allt að 700 manns.

Þetta er listi yfir þá rétti sem við höfum verið að bjóða uppá, ef að þið hafið aðrar hugmyndir þá ekki hika við að hafa samband. Þurfum yfirleitt lágmarks viku fyrirvara..Verðið er frá 1500-1950,- pr mann

Tertur veljið 4 – 5 teg eftir fjölda gesta

  • Súkkulaði mousse terta með perum “ sem afmælisterta” eða súkkulaði og ástríðuávaxtamousse með perum ( fersk og sumarleg )
  • Púðursykurs marengs terta “Draumaterta”
  • Baileys terta Konfekt terta
  • Sacher
  • Jarðarberja marengs terta
  • Osta tertur / mokka- sítrónu- jarðarerja- mintu og súkkulaði og fl

Heitir réttir val á 2-3 teg

  • Brauðréttur með skínu, camembert og aspas
  • Brauðréttur með pepperoni, pestó, sólþurkuðum tómat og ferskum mozarella
  • Baka með beikoni og blaðlauk “Quich Lorrenne”
  • Epli og súkkulaði í möndlukremi með rjóma

Brauð – tapas sittur – brauðtertur , val á 3-5 teg

  • Tapas snitta með laxi og piparrótar rjóma
  • Tapas snitta með bacon og lifrarkæfu
  • Tapas snitta með salati og hummus
  • Tapas snitta með hummus, tómat og mozarella
  • Hangikjöts kartöflusalat á rúgbrauði
  • Fylltur brauðhleyfur með sjávarréttarsalati
  • Koktial samlokur “litlar” blandað brauð og álegg.
  • Brauðterta með spægipylsu, rauðu pesto, og spergli í grófu brauði
  • Brauðterta með ferskum tómat, skinku, hummus, camembert og salatblöðum i grófkorna brauði
  • Brauðterta með karrí-sjávarréttarsalati mango chutney, salatblöðum og reyktri bleikju

Kökur 2- 3 teg Muffins fyrir krakka

  • Skúffukaka fyrir krakka
  • Gulrótar kaka með rjómaosti og valhnetum
  • Hjónabandssæla
  • Formkökur og lagtertur

Sent heim og Þið sjáið sjálf um að fylla á borðið, eða fáið þjónustu frá okkur

Öllum áhöldum skilað hreinum / eða ekki til baka.

Getum yfirleitt útvegað allan borðbúnað og glös sem til þarf