Kvöldverður í heimahúsi, geri tilboð í hverja veislu fyrir sig.
Skemmtilegast er að hafa nokkra rétti, td, 2-3 forétti aðalrétt og svo ábætir.. ath launakostnaðurinn hækkar ekki svo mikið við það.. við getum verðið að tala um fastan kostnað uppá 45.000 síðan hráefni frá 2500-3500 pr mann..
KEM MEÐ ALLAN BOÐBÚNAÐ SÉ ÞESS ÓSKAÐ, VASKA ALLT UPP OG ÞRÍF, EINS OG ENGINN HAFI VERIÐ Í ELDHÚSINU.
Get einnig unnið úr því hráefni sem þið viljið úvega sbr.villibráð, sjávarréttum
Forréttir
- Heitreyktur sinnepssmurður lax með arabísku kús kús salati
- Kalkúna salat með stökku salati, marineraður í japanskri dressingu með mið austurlanda dressinu
- Grillaður humar með hvitlaukssmjöri
- Alvöru humar og skelfiskssúpa með saffran og rjóma
Brauð og meðlæti
- Blandað brauð með ólífumauki, pesto, hummus
Sjávarréttir; sem milliréttur eða alalréttur
- Saltfisks hnakki að hætti Kataloníu búa með tómat, möndlum, rúsinum og fl
- Grillaðir hálfir humarhalar í skel með hvítlaukssmjöri
- Steiktur saltfiskur og humar með humarsósu
- Skelfiskur í engifer og apelsínusósu
- Bacon vafinn skötuselur með gljáðum lauk og sveppum í rauðvínssósu
Kjötréttir, miða við 1 rétt ef aðalréttur
Kjúklingur / fugl
- Fyllt kjúklingabringa í pipar sveppasósu eldsteikt
- Steikt Kjúklingabringa með viðeigandi sósu að eigin vali
- Kjúklingur í indverski karrí með eplum, ananas og mangó chutney
- Austurlenskur kjúklingaréttur með cashew hnetum og núðlum
- Fylltar kalkúnabringur með ávaxtafyllingu
- Kalkúnabringa á brauð og hnetufyllingu
- Andarbringur Orange
Kjöt
- Ofnsteikt lambalæri með kryddjurtum ( eða að eigin vali )
- Léttsteikt lambafille með sósu að eigin vali
- Fylltar grísalundir með döðlum graðosti og hnetum
- Innbakaðar nautalundir Wellington í smjördegi
- Nauta prime rib
- Kalt nauta fille “Roast beef”
- Dádyra steik í villibráðar piparsósu
- Nauta piparsteik með grænum pipar, og grand marnier, flamberaðar á staðnum.
- Möguleiki á öðrum réttum sbr, strút, kanínu, dúfu, fashana, Krónhjört,héra, akurhænu og fl
Sósur
- Rjóma villisveppasósu
- Grænpipar sveppasósu
- Rauðvínssósu
- Madeira villisveppasósa
- Bérnaise
- Einhverjar séróskir?
Meðlæti
- Ferskt blandað salat með úrvali og dressingar
- Ferskt heitt grænmeti , blómkál, spergilkál, succini, paprika, gulrætur
- Grófskorið grænmeti og léttsteikt ( sama og hér fyrir ofan + cashew hnetur )
- Gljáðar gulrætur í smjöri og hunangi
- Steikar kartöflur skinnlausar í smjöri
- Sveita kartöflur , kartöflubátar með papriku lauk og provance kryddi
- Franskar sætar sveitakartöflur með provance grænmeti olífuolíu og kryddi
- Fylltir tómatar með grænmetismauki
- Gufusoðið blómkál með sítrónu
- Smjörsteiktir sveppir
- Grænmetis baka með fetaosti
- Hrisgrjón pilaf með grænmeti / kryddgrjón
- Heimalagð rauðkál með eplum, sólberjasaft og einiberjum
Ábætisréttir, bakaðir á staðnum
- Epli í möndlu kremi með súkkulaði og marengs
- Peruterta í möndlukremi með kanilís
- Volg fljótandi vertrarkrydduð súkkulaði kaka með kryddís
- Eða Frönsk súkkulaði terta með grand marnier ís, og ávöxtum