Uppskriftir

Hnetusmjörs ostaterta

Handa 8

BOTN

1 ½    bl      mjög dökkar súkkulaði kökur ( jafnvel orios )

5       msk   ósaltað smjör

FYLLING

180    g       rjómaostur við stofuhita

¾       bl      hnetusmjör við stofuhita

1       bl      rjómi

½ +    bl      flórsykur

1       tsk     vanilludropar

-

30      g       millisætt súkkulaði saxað

BOTN; Hitið ofninn í 175°c . Smyrjið lausbotna tertumót með smjöri. Miljið kökurnar í matvinsluvél með smjörinu í mjúkann massa. Klæðið kantana og botninn með massanum, pressið vel með köntunum.  Bakið í 10 mín og kælið á kökugrind

FYLLING; þeytið saman rjómaosti og hnetusmjöri í hrærivél. Þeytið saman í annari skál rjóma sykur og vanillu passið að þeyta rjómann ekki of mikið.

Blandið rjómanum saman við í tvennu lagi.  Haldið til haga 3 msk af fyllingu setjið restina í botninn og jafnið vel út. Bræðið súkkulaðið og blandið samanvið afgangs fyllingu, setjið í sprautupoka með mjórri sléttri túðu og sprautið í hringi á tertuna. Dragið með hnífsoddi frá miðju út að hliðum. Kælið tertuna fullkomlega og takið úr forminu rétt fyrir framreiðslu.

Geymist í kæli 2-3 daga Framreiðist köld.
Innbakaðar Nautalundir Wellington

Magn og innihald

1        st       nautalund sina hreinsuð  ca 1-1,5 kg

1        blað smjördeig ca 500-700 gr

6-800 g        duxell

1        st       egg ( slegið með jafnmiklu af vatni, smá salt og sykur)

Duxell

100    g        smjör

200    g        laukur fínt saxaður

100    g        sveppir saxaðir

100    g        skínka söxuð/hökkuð

100    g        brún sósa

1        msk    tómat purre

1        tsk      thyme

1        st       hvítlauksgeiri

1        bt      steinselja fínt söxuð

200    g        brauðraspur ókryddaður

Aðferð Duxell

Hitið smjörið í potti , kraumið laukinn uns hann er orðinn gullbrúnn, bætið þá sveppum útí steikið áfram í 3 mín, setjið þá rest af uppskrift útí – og sjóðið saman, smakkið til og þurrkið síðan upp með brauðraspi. Kælið.

Nautalund

Kryddið nautalundina með ca 1 msk thyme, 1-2 msk grófu salti og 1 msk

hvítum nýmuldum pipar, ½ dl olífu olía

Nuddið kjötið vel með kryddinu og brúnið á vel heitri pönnu eða grillið á útigrilli, mikilvægt að brúna vel, en ekki seikja of lengi. Kælið.

Samsetning

Fletjið út smjördegið í jafnan ferhyrning

Setjið ½ af duxellinu á degið , lundina ofaná og res af duxell yfir lundina og þekjið vel. Skerið í horn af deginu sem nema við lundina. Þannig að fyrir miðju á deginum á hvorum enda er flibbi sem legst yfir lundina. Penslið vel með vatni. Leggið þá annan helminginn yfir lundina og síðan hinn, þar sem deig mætist passið að þar sé degið vel penslað með vatni.

Takið endana sem eftir eru af deginu (Hornin) og skerið í strimla.

Penslið degið nú með egginu og raðið strimlunum á víxl yfir lundina, penslið og leyfið lundinni að standa í kæli í ca 2 tíma áður en hún er bökuð.

Bakstur

Í venjulegum heimilisofni.. 200-210 °c í 25 min eða þar kjarnhiti hefur náð 50°c þá er hún tekin út og látin standa í 20 mín áður en hún er skorin fyrir..

Hvítlauks og kryddjurtamarinerað lambalæri

1        st       lambalæri ca 2,8-3 kg

Úrbeinið lykilbeinið frá og hækilinn.

4        msk    gróft salt

2        msk    nýmulinn hvítur pipar

2        msk    thyme

2        msk    rosemarine eða 2-3 greinar ferskt

1        msk    estragon

6-8     st       hvítlauksgeirar skornir í strimla

2        dl       ólífu olía

Stingið með hnífsoddi í lambalærið og stingið hvítlauknum inn í lærið.

Kryddið lærið og nuddið vel.

Best finnst mér að láta kjötið þiðna í kæli í 3-4 daga, þá krydda það og láta það standa í kæli í aðra 3-4 daga..  tekið út úr kæli 5-7 tímum fyrir eldun.

Eldun.. Hitið ofnin í 210 °c og steikið lærið í ca 15 mín , lækkið hitan í 90°c stingið kjöt hitamælir í lærið innað beini og eldið lærið uns það hefur náð 64°c , leyfið því þá að jafna sig í ca 20 mín áður en það er skorið fyrir..

Tíminn sem það tekur kjötið að ná 64°c getur verið allt að 4-5 tímar..
Grænt Pestó

200    g        ferskt basil

50      g        furuhnetur ( má sleppa nota cashew í staðinn )

40      g        hvítlaukur

40      g        þurkaður parmesan

60      g        Parmesan ferskur

½       tsk      salt

½       tsk      hvítur nímulinn pipar

-bætt svo samanvið

½       kg      rjómaostur

½       l         olífuolía

2        msk    brauðraspur / ókryddaður

Blandið öllu saman í matvinsluvél og maukið vel, bætið síðan seinnihlutanum samanvið..

Gróft brauð með þurkuðum ávöxtum

500    g        brauðhveiti

500    g        durum semolina

50      g        heilhveiti

40      g        rúgmjöl

20      g        hveitiklíð

50      g        graskersfræ

50      g        sólblómafræ

10      g        þurrger / eitt bréf

20      g        salt

Blandið saman í hrærivelaskál eða á borði bætið síðan vökvanum rólega útí

6        dl       volgt vatn

½       dl       olía

Hrærið vel saman uns degið fer að sleppa skálinni, látið lyfta sér setjið þá saman við

150    g        apriskósur saxaðar gróft

150    g        rúsinur

Hnoðið áfram án þess þó að kremja ávextina of mikið, látið hefast.

Þega degið hefu hefast í annað sinn er það mótað og látið hefast að nýju. Bakað við ca 180°c við mikinn raka í ca 35-45 mín

Marakóskur kjúklingaréttur að mínum hætti….Örn Garðars.

1 kg kjúklingabringur skornar í ¼- 1/6 bita ( eða 2 kjúklingar hlutaðir í sundur )

Krydd..

¼ tsk negull

½ tsk kardimommur

1 st kanilstöng

1 msk cummen heilt

2 msk engifer ferskt

4 st hvítlauksgeirar eða 2 msk maukaður

1 msk sjávarsalt

½ tsk svartur mulinn pipar

Grænmeti ( má bæta fleirri tegundum við sbr. Papriku, succini og þh)

1-2 st laukar fínt saxaður ( eða 2 bollar )

-

2 st gulrætur skornar í sneiðar

1 hs broccoli skorið í litla bita

1 hs blómkál ( lítill )

1 poki 250 gr þurkaðar apríkósur skorinn í bita

½ poki 125 gr Döðlur skornar í tvent

1 bolli salthnetur

Annað

1 bolli olía

1 dós kokosmjólk 120-200 g

Aðferð ..

Hitið olíuna á pönnu og svitið laukinn, bætið öllum kryddum úti og kraumið í nokkrar mínótur án þessa að það brenni við.. Kælið.

Blandið síðan öllu saman og látið standa yfir nótt.

Setjið í eldfast mót og bakið í 40 mín við 175°c eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn

Framreitt með hrísgrjónum, eða cous cous, salati og brauði..

Kveðja Örn Garðars.

Mexikóskur nautapottréttur í súkkulaði bættri chilli sósu

Mole ookorado de oaxaca

1 kg nautakjöt í strimlum

Chiles útvatnaður og skorinn í bita

12 þurkaðir ancho chiles

10 guajillo chiles

ca6 bollar vatn

krydd í blender

1 msk sv pipar grófmulinn

150 g laukur

4 msk sykur

1 msk þurrkað oregano

½ msk þurrkað thyme

1 msk salt

½ msk hvítur nýmulinn pipar

1 bolli sesame fræ ristuð

6 st negul naglar

3 st mulinn mignottu pipar

2 msk ristað cumin heilt

½ dl olífu olía

Grænmeti skorið í sneiðar

300 gr laukur í ½ sneiðum

1 stór kanilstaöng

½ dl Olífu olía

250 st rauð paprika í ½ sneiðum

250 st græn paprika í ½ sneiðum

200 g gulrætur þvegnar og skornar í bita

í sósuna bætum við

Vatn til að fljóti yfir

1 msk kjúklinga kraftur

300 g tomato paste

100 g suðusúkkulaði eða 1 msk koko

-Chili er sett yfir til suðu þegar sýður er potturinn tekinn af og látið standa í klst. eða uns það er útvatnað. “Mjúkt” Chilli er skinn og fræ hreinsað og gróft saxað

-Maukið saman öllu öðru kryddi,olíu, lauk og sesam fræum í blender

-Hitið fituna í potti og ristið síðan kjötið í pottinum, bætið útí grænmetinu öllu síðan tómatmaukinu og soðið rólega í um 7 mínótur. hrært rólega í á meðan. Krydd og sesame mixinu bætt útí ásamt 1-1,5 bolla af kjötsoðinu, sykri og salti og chili maukinu , soðið áfram í 30 mín, meira soði bætt í eftir þörfum

Nb frá Erni

* Ef chili þurkaður er ekki við hendina er nægilegt að nota 1/3 bolla af chili dufti

* ég hef stundum þegar ég hef lagað þennan pottrétt blandað öllu saman, kjöti, sesam kryddblöndu og grænmeti, vacuum pakkað og látið marinerast í 1-2 daga, þá brúnað eins og áður er sagt.

Framreiðsla

1 Með tex mex grjónum

2 TX-mx grjónum í hveiti tortilla, sýrðum rjóma, salsa og salati

3 Með corn tortillas, sýrðum rjóma, salsa og salati

Rauðkál heimalagað

10 kg Ferkst rauðkál skorið í þunna strimla í höndunum

3 kg Sykur

2 L Sólberjasaft

500 g Hunanag

2 l Rauðvínsedik

30 st skræld og kjarnahreinsuð epli , skorin í grófa bita

2 bollar Einiber

0,5 Bolli Negull

2 bollar Salt

10 st Lárviðarlauf

4 stangir Kanill.

Sett í stóran pott og látið marinerast yfir nótt, sett yfir til suðu nbæsta dag soðið rólega með loki á í 20 – 30 mín látið síðan kólna í soðinu, pakkað og geymt í kæli

nb gott að nota rabbarbara með ca 3- 4 kg  í grófum bitum

Pottþétt partísnakk

Vatnsmelónu margarita

1 1/3 bolli Tequila

1/3 bolli Cointreau

5 msk Sykur (ef vilt vera “healthy” og nota agave þá eru 2,5 msk nóg)

1/4 bolli Lime safi (ég kreisti fersk lime-finnst það betra)

1 msk Lime börkur

1 st Vatnsmelóna

Svo er vatnsmelónan bara skorin í helming og stungin göt á hana með steikargaffli (fullt af götum takk) eða grillprjónum.

Blöndunni er hellt yfir og melónan drekkur þetta í sig. Best að láta standa yfir nótt.

Svo er bara skorið niður og fólk (á löglegum aldri) nartar i :)